|
Grimsholm var sjósettur í kvöld í Hafnarfjarðarhöfn við mikinn fjölda áhorfenda í veðurblíðunni í kvöld. ![]() Grimholm er byggður fyrir bræðurnar Håvard og Jens Nilsen og verður báturinn gerður út frá Burøysund sem er fyrir norðan Tromsøy í norður Noregi. Þar verður hann á Neta og Línuveiðum. Báturinn er 13 x 4,22 metrar og er með Caterpillar C-18 vél sem skilar 1015 hestöflum, 220 volta Ljósavél frá Mastervolt, glussakerfi frá Danfoss og Electra, veiðarfærum frá Beitir ehf og mjög góðum tækjapakka frá Sónar ehf. Báturinn er innréttaður fyrir 4 og er í lúkar 3 góðar kojur, eldhús með ceramic helluborði, ísskáp og örbylgjuofni og miklu skápaplássi. Undir stýrishúsgólfi er svefnherbergi og tækjaskápar. í stýrishúsi er matsalur bakborðsmegin sem situr 6 manns, stjórnpúlt er stjórnborðsmegin ásamt 2 dempandi stólum, mælaborð með 5 tölvuskjám sem sýna Radar, Dýptarmælir, Olex siglingarforrit, myndavélarkerfi og Plotter, einnig er skjár út á dekk sem sýnir Dýptarmæli og Siglingarforritið. Báturinn er hannaður fyrir Norsk ættuð kör frá Sæplast ehf og tekur 23 stk 350 ltr kör. Lestin er 23 rúmmetrar. Grimsholm verður siglt til Noregs og verður sett í bátinn aukabúnaður sem að er leigður fyrir þessa siglingu, vegna öryggis. Áætlað er að hann verði 2 -3 - 4 daga að sigla yfir til Noregs en það fer eftir veðri og vindum en fyrsti leggurinn verður Hafnarfjörður - Vestmannaeyja, þar verður fyllt á olíu og haldið strax af stað til Færeyja nánar tiltekið Vogar þar sem að þeir eiga kunningja og fyllt upp aftur af olíu ( Lengsti leggurinn í þessari siglingu er Vestmannaeyjar til Voga í Færeyjum, það er styttra til Noregs frá Færeyjum en til Íslands ) Svo mun báturinn halda til Álasunds sem er vestast í Noregi og þar mun báturinn halda síðan í heimsókn til Mustad og síðan að halda áfram Norður eftir Noregi til Løfoten þar sem að verður sett í hann Netaspil. Eftir það mun hann sigla á milli Norskra fjalla til heima hafnar. Komnar eru myndir af bátnum inná Myndaalbúmið okkar. Samtak ehf óskar bræðrunum til hamingju með bátinn. Samtak ehf |
Grimsholm var sjósettur í kvöld í Hafnarfjarðarhöfn við mikinn fjölda áhorfenda í veðurblíðunni í kvöld. |
| Read more... |
Hér er hægt að skoða myndband af DÚDDA GÍSLA á veiðum. {wmv}dg01{/wmv} |
Grimsholm Norski báturinn frá okkur verður sjósettur á morgun Sunnudaginn 17 mai kl 8 um kvöldið. |
| Read more... |
Laugardagurinn 11.10.2008 . |
| Read more... |
Skútahrauni 11
220 Hafnarfirði
ICELAND
Sími : +354 565 1670
+354 565 1850
Fax : +354 565 2069
Skútahrauni 11
220 Hafnarfjörður
Ísland
Sími: +354 5651670/+354 5651850
fax: +354 5652069
samtak@samtak.is
