Samtak Víkingur 999 Nýtt Strandv.b.

Nýr Strandveiði bátur frá Samtak ehf.

Núna næstu daga munum við kynna Strandveiði bát frá okkur í Nýja kerfið.

Aðalmálið er að hann verður einfaldur og hraðskreiður bátur byggður uppúr okkar farsæla Víkingur 800 bátnum.

Mun fást með Hældrifs vélbúnaði frá Marás ehf ( Yanmar) og einnig með Hefðbundnum Skrúfubúnaði einnig frá Marás ehf.

Báturinn mun verða opinn bátur og  boðin fyrst sem Standard útgáfa og verður með einfaldlega eins littlu og hægt er að komast af með haffærnisskirteini.

Síðan verður val hvers kaupanda hvað hann vill velja í bátinn af búnaði og  aukahlutum.  Einnig verður í boði að hafa bátinn dekkaðan. En allt er það val kaupandans hvað hann vill velja sér.

Munum koma til að bjóða bátinn með vélbúnaði frá  Marás ehf , annað hvort með Hældrifs útgáfu eða með hefðbundnum skrúfubúnaði.

Einfaldan bát  en samt þessi góði 800 bátur en nú loksins í réttri lengd.
Báturinn mun verða boðin í Standard útfærslu , Sem verður einfaldasti báturinn með haffæri sem Opinn handfæraveiðibátur. Plast innréttingu fram í lúkar.
Ekki Teak kojuhlerar, ekki Teak Skápar sem sagt enginn íburður.  En plast innréttingin er sú sama og er í öllum Víking 800 og er hægt seinna meir að bæta við Skápunum og kojunum ef menn vilja eða bæta þeim við strax, allt eftir þörfum viðskiftavinarins.
Báturinn er opinn en plittishæðin er sú að vélin fer undir plittishæðina, þar af leiðandi fæst fullt dekkpláss, í miðju dekksins er niðurfelling fyrir 6 stk 380 ltr kör.
Vélbúnaður verður 315 hestafla Yanmar vél með Glussaskiftings -hældrifi sem er það nýjasta á markaðnum í dag, sem gerir skiftinguna mjuka og góða, sem sagt miklu minna slit.
Það sem verður útkoman með þennan bát er að hann verður léttur, eyðslugrannur, einfaldur, ódýr og hraðskreiður..
Þetta verður sem sagt grunn útgáfan af Strandveiðibátnum.
Síðan verðum við með þilfars útgáfu af þessum bát.  En að sjálfsögðu byggjum við hvern bát fyrir hvern kaupanda fyrir sig, eins og hann vill fá hann.

Strandveiðar

 

 

PRODUCTS

 

LATEST NEWS

Grimsholm var sjósettur í kvöld í Hafnarfjarðarhöfn við mikinn fjölda áhorfenda í veðurblíðunni í kvöld.

 
Read more...
 

Hér er hægt að skoða myndband af DÚDDA GÍSLA á veiðum.

{wmv}dg01{/wmv}

 

Grimsholm Norski báturinn frá okkur verður sjósettur á morgun Sunnudaginn 17 mai kl 8 um kvöldið.

Read more...
 

Laugardagurinn 11.10.2008
DÚDDI GÍSLA var sjósettur í dag um kl 17:30 eftir að við höfðum beðið eftir kranabílnum í ca 3 kl.stundir, með bátinn, kerruna og Dráttarbílinn á bryggjukantinum

.

Read more...
 

Samtak ehf.

Skútahrauni 11
220 Hafnarfirði

ICELAND

Sími : +354 565 1670
+354 565 1850

Fax : +354 565 2069

Samtak ehf.

Skútahrauni 11
220 Hafnarfjörður
Ísland

Sími: +354 5651670/+354 5651850
fax: +354 5652069

samtak@samtak.is