Aðstoð
Hafa samband
Samtak svf. er lítið félag, að mestu í sjálfboðavinnu á meðan á stofnun stendur, svo hér er hvorki þjónustuver né ábyrgst svartími. Fyrirspurnum, ábendingum og villutilkynningum má þó alltaf beina á samtakamatt@gmail.com og þeim er svarað eins fljótt og verður við komið.
Innskráning með rafrænum skilríkjum
Mínar síður nota Kenni.is fyrir innskráningu með rafrænum skilríkjum. Þar er hægt að velja Auðkennisappið, Aðgangslykil (passkey) eða símanúmer. Ef þú hefur ekki sett upp Auðkennisappið eða aðgangslykil áður er einfaldast að velja símanúmer, engin uppsetning þarf fyrirfram.

Eftir það gerist næsta skref á símanum sjálfum, ekki í vafranum: símafyrirtækið þitt (Nova, Síminn, Vodafone o.fl.) birtir staðfestingarglugga beint frá SIM-kortinu. Hann getur við fyrstu sýn litið út fyrir að tengjast einhverju öðru en samtak.is, en talan í honum á að passa við það sem Kenni sýnir í vafranum.


PIN-númerið er frá símafyrirtækinu þínu, ekki Samtaki eða Kenni, hvorugt sér það nokkurn tíma. Gluggarnir tveir geta stundum leynst á bak við aðra glugga á símanum eða komið upp með smá töf, bíddu rólega. Þegar innskráningunni er lokið vísar vafrinn þér sjálfkrafa aftur inn á samtak.is.
Að komast inn á fjarfundinn
Þegar þú ert innskráð/ur, farðu í Spjall á Mínum síðum og opnaðu „Almennt spjall“. Efst í glugganum er rauði hnappurinn „Fara á vídeófund“, hann opnar fundinn í nýjum flipa.

Zoom-síðan sem opnast reynir fyrst að opna Zoom-forritið á tækinu þínu. Ef þú hefur ekki sett upp forritið (sem er alveg í lagi), ekki bíða eftir að það opnist, heldur veldu „Join from browser“ fyrir neðan stóra bláa hnappinn.

Því næst er spurt hvort hljóðnemi og myndavél megi kveikja á, þú getur alltaf breytt því síðar og óhætt er að velja „Continue without microphone and camera“ ef þú ert ekki viss. Á næsta skjá er beðið um nafnið þitt, en ef þú komst þessa leið frá „Fara á vídeófund“-hnappnum er nafnareiturinn yfirleitt þegar útfylltur með nafninu þínu úr Kenni-innskráningunni, þú þarft þá ekkert að slá inn sjálf/ur.

Spurningar um félagsaðild
Spurningum um umsókn, aðildargjald eða stöðu félagsins er svarað á sama netfangi. Sjá einnig Um félagið og drög að samþykktum. Innskráðir félagsmenn finna ítarlegri svör við hvers vegna félagið er byggt upp eins og það er, þar á meðal skatta og samvinnufélagsformið, undir Spurt og svarað á Mínum síðum, og fulla tímaröð allra formlegra ákvarðana undir Ákvarðanir.
Aðstoðarþjarkurinn Þjark
Þjark svarar spurningum um félagið beint í félagaspjallinu á Mínum síðum (skrifaðu „@þjark“ fremst í skilaboðum í almennu rásinni), og getur stundum svarað hraðar en tölvupóstur. Ef svar hans dugar ekki, eða spurningin er persónuleg, er samtakamatt@gmail.com rétta leiðin. Sjá nánar um Þjark á sérstakri síðu um hann.
Tæknileg vandamál á vefnum
Ef eitthvað virkar ekki sem skyldi á samtak.is, til dæmis skráning á póstlista eða innskráning, sendu lýsingu á vandamálinu á samtakamatt@gmail.com, helst með skjáskoti og upplýsingum um vafra og tæki.