Um félagið

Samvinnufélag í almannaþágu

Samtak svf. er samvinnufélag um samfélagslegan rekstur af ýmsu tagi í almannaþágu, án hagnaðarkröfu. Félagið er sjálfstætt og óháð stjórnmálaflokkum og öðrum félögum.

Hvað er samvinnufélag?

Samvinnufélag (svf.) er félagsform samkvæmt þar sem félagið er í eigu félagsmanna sinna. Hver félagsmaður fer með eitt atkvæði, óháð framlagi eða viðskiptum við félagið, svo enginn getur keypt sér yfirráð. Félagsmenn bera enga persónulega ábyrgð á skuldbindingum félagsins umfram aðildargjald sitt, og tekjuafgangi er ekki úthlutað til félagsmanna heldur rennur hann til starfseminnar sjálfrar.

Rekstrarbyrði og skattaleg staða

Skráningargjald samvinnufélags hjá Skattinum er 276.500 kr., sama upphæð og fyrir hlutafélag. Til að halda kostnaði í lágmarki kýs félagið sér skoðunarmenn úr röðum félagsmanna í stað þess að kaupa þjónustu löggilts endurskoðanda, eins og heimila. Samvinnufélög greiða 20% tekjuskatt af hagnaði líkt og hlutafélög og geta ekki skráð sig á Almannaheillaskrá, en veitir sjálfstæða undanþágu frá tekjuskatti fyrir félög sem verja hagnaði sínum eingöngu til almannaheilla, óháð þeirri skrá. Samþykktir félagsins eru samdar með þessa leið í huga. Fari skattskyld velta ekki yfir 2.000.000 kr. á 12 mánaða tímabili er félagið undanþegið virðisaukaskattsskráningu, en glatar þá jafnframt rétti til að draga innskatt frá aðföngum sínum.

Staðan: félag í stofnun

Félagið er í stofnunarferli og drög að samþykktum þess hafa verið birt. Samkvæmt drögunum verður aðild opin einstaklingum sem samþykkja tilgang félagsins, og aðildargjald er 100 kr. sem greiðist einu sinni við inngöngu, auk árlegs félagsgjalds að fjárhæð 1 kr. Stofnfundur er boðaður fimmtudaginn 13. ágúst 2026 kl. 19:30, rafrænt. Þar til skráningu er lokið ber hver sá sem tekur á sig fjárskuldbindingar í nafni félagsins á því persónulega ábyrgð, samkvæmt .

Fyrsta verkefnið: Rósa Parks

Fyrsta lausnin sem félagið tekur að sér að reka er smáforritið Rósa Parks, opið bílastæðaforrit fyrir Reykjavík sem er rekið án álagningar og án hagnaðarkröfu. Bílastæðagjöldin sjálf renna áfram óskert í Bílastæðasjóð, en engin þóknun leggst ofan á. Verkefnið sýnir í verki að almannaþjónusta af þessu tagi þarf ekki að standa undir arðgreiðslum til milliliða.

Fylgstu með

Skráðu þig með rafrænum skilríkjum til að fá fréttir af félaginu, þar á meðal fundarboð á stofnfundinn sem haldinn verður 13. ágúst 2026. Í skráningunni má velja fulla aðild eða einungis að fylgjast með á póstlista. Fyrirspurnum má beina á samtakamatt@gmail.com.