Skilmálar (drög)

Félagið er í stofnunarferli og þessir skilmálar eru því drög, ekki fullnaðarskjal. Þeir lýsa því hvernig vefurinn og aðstoðarþjarkurinn eru rekin í dag og geta breyst eftir því sem félagið mótast, sbr. drög að samþykktum.

Hver rekur þjónustuna

Vefinn samtak.is og aðstoðarþjarkinn Þjark rekur Samtak svf., samvinnufélag um samfélagslegan rekstur í almannaþágu. Sjá nánar á Um félagið.

Notkun vefsins

Vefurinn miðlar upplýsingum um félagið, tekur við umsóknum um félagsaðild og heldur utan um póstlista. Notkun hans skal vera í samræmi við tilgang félagsins og ekki til þess ætluð að skaða þjónustuna eða aðra notendur hennar.

Aðstoðarþjarkurinn Þjark

Þjark er sjálfvirkur aðstoðarþjarkur félagsins. Hann svarar út frá útgefnum staðreyndum um félagið og opinberum gögnum, en er hvorki lögfræðileg né fjárhagsleg ráðgjöf. Ef svar hans er óljóst eða vafi leikur á réttri niðurstöðu skal leita til stjórnar félagsins. Sjá nánar á sérstakri síðu um Þjark.

Ábyrgðartakmörkun

Félagið er rekið án hagnaðarkröfu, að mestu í sjálfboðavinnu á meðan á stofnun stendur. Þjónustan er veitt eins og hún er ("as is"), án ábyrgðar á samfelldri tiltækni eða fullkomnu villuleysi. Félagið ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af notkun vefsins eða Þjarks umfram það sem lög áskilja.

Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga er lýst sérstaklega í persónuverndarstefnu félagsins.

Breytingar og samband

Skilmálunum kann að verða breytt eftir því sem starfsemi félagsins mótast, meðal annars við stofnfund. Fyrirspurnum má beina á samtakamatt@gmail.com.