Tímalína
Félagið var stofnað 13. ágúst 2026. Þetta er gróft yfirlit yfir stjórnsýslulegu skrefin sem því fylgja, ekki nákvæm eða tæmandi skrá.
Undirbúningur
- Samþykktir félagsins samdar og birtar sem drög fyrir stofnfund.
- Lén samtakamatt.is og samtakamátt.is skráð og vefurinn opnaður 17. júlí 2026; félagið endurnefnt Samtak svf. og lénið samtak.is gert að meginléni 11. ágúst 2026.
- Formleg tengsl við stjórnmálaflokk slitin, sjá Um félagið.
Fundarhald
Stofnfundur var haldinn fimmtudaginn 13. ágúst 2026 kl. 19:30, rafrænt. Á honum var stjórn kjörin, skoðunarmaður kjörinn og samþykktir félagsins staðfestar formlega. Fyrsti stjórnarfundur var haldinn daginn eftir, 14. ágúst 2026.
Formleg skráning og heiti
Félagið var skráð hjá Fyrirtækjaskrá 27. ágúst 2026 og ber kennitöluna 670826-0660. Skráningin hvílir á fundargerðum stofnfundar og fyrsta stjórnarfundar ásamt staðfestum samþykktum félagsins, sem undirrituð voru með rafrænum skilríkjum.
Frá þessum degi er Samtak svf. sjálfstæður lögaðili. Skráð samvinnufélag getur eitt öðlast réttindi á hendur öðrum með samningi og aðrir á hendur því, og við skráninguna tekur félagið við þeim skyldum sem stofnað var til fyrir hönd þess frá stofnfundi.
Skil á gögnum til opinberra aðila
Stofngögnin voru send Fyrirtækjaskrá 17. ágúst 2026, innan þess mánaðar sem lög nr. 22/1991 um samvinnufélög veita frá stofnfundi. Fyrirtækjaskrá gerði þrjár athugasemdir og var þeim svarað 18. ágúst. Önnur skil til opinberra aðila fara fram eftir því sem við á.
Viðskiptabanki
Viðskiptabankareikningur í nafni félagsins var stofnaður 31. ágúst 2026 hjá Landsbankanum, fjórum dögum eftir skráningu. Félagið getur því tekið við aðildargjöldum og öðrum greiðslum milliliðalaust.
Skráning
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum til að gerast félagi eða fylgjast með á póstlista. Fyrirspurnum má beina á samtakamatt@gmail.com.