Persónuvernd
Síðast uppfært: 2. október 2026
Ábyrgðaraðili
Samtak svf. ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem safnað er á þessum vef. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á netfangið samtak@samtak.is.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Vefurinn notar engar vefkökur, og engar upplýsingar eru sendar þriðja aðila í markaðsskyni. Að lesa vefinn krefst engrar skráningar. Það eina sem gestur getur skilið eftir sig er:
- Tæknilegar upplýsingar við heimsókn, á borð við IP-tölu, sem vefþjónninn vinnur með tímabundið til að afgreiða síðuna, eins og öll vefhýsing gerir.
- Póstlisti. Þar skráir þú netfang og, ef þú vilt, nafn. Skráningartími og staðfestingarstaða skráningarinnar eru vistuð með.
Tilgangur og heimild
Póstlistaskráning er eingöngu notuð til að senda þér fréttir af félaginu, og vinnslan byggir á samþykki þínu, sem þú getur afturkallað hvenær sem er með afskráningu. Tæknilegu upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að birta vefinn og mæla aðsókn að honum í samanteknum tölum.
Hýsing og varðveisla
Vefurinn er rekinn á Cloudflare Workers með Cloudflare D1 gagnagrunni, á Cloudflare-reikningi sem félagið heldur. Cloudflare er vinnsluaðili gagnanna og um vinnsluna gildir gagnavinnsluviðauki Cloudflare, sem er hluti af þjónustuskilmálum fyrirtækisins.
- Vefþjónninn (Cloudflare Worker) keyrir fyrir íslenska umferð á jaðri Cloudflare í Keflavík.
- Vefgreining (Cloudflare Web Analytics) telur síðuflettingar og mælir hleðslutíma síðna. Hún notar hvorki vafrakökur né geymir auðkenni í vafranum, og félagið sér aðeins samanteknar tölur, ekki einstaka gesti.
- Gagnagrunnurinn (Cloudflare D1) geymir póstlistann á Vestur-Evrópu (WEUR) svæði Cloudflare.
Cloudflare er bandarískt fyrirtæki og fellur því undir CLOUD Act í Bandaríkjunum, sem getur í undantekningartilvikum heimilað bandarískum yfirvöldum aðgang að gögnum.
Póstlistaskráning er varðveitt þar til þú afskráir þig eða óskar eftir eyðingu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, leiðréttingu þeirra og eyðingu. Þú getur afskráð þig af póstlistanum hér og við það er sú skráning eytt að fullu. Aðrar óskir sendast á samtak@samtak.is. Ef þú telur á þér brotið getur þú kvartað til Persónuverndar.
Félagar og umsækjendur
Ef þú skráir þig inn á Mínar síður eða sækir um aðild að félaginu gildir sérstök lýsing: Persónuvernd félaga.