Persónuvernd félaga
Síðast uppfært: 2. október 2026
Fyrir hverja
Þessi lýsing á við um alla sem skrá sig inn á Mínar síður: félaga, þau sem sækja um aðild og þau sem fylgjast með. Félagi er sá sem af fúsum og frjálsum vilja er í félagi með öðru fólki. Félagið selur ekki upplýsingar um félaga og býr ekki til vöru úr þeim; þær eru aðeins notaðar til að reka félagið. Almennir gestir vefsins finna sína lýsingu á síðunni Persónuvernd.
Ábyrgðaraðili
Samtak svf. ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem lýst er hér. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á netfangið samtak@samtak.is.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
- Innskráning. Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum í gegnum Kenni.is, sem staðfestir kennitölu þína, nafn og, ef þú samþykkir það, símanúmer. Kennitalan er vistuð dulkóðuð, ekki í hreinum texta. Netfang bætir þú sjálf/ur við á Mínum síðum.
- Full aðild. Ef þú velur fulla aðild bætist bankareikningsnúmer við, bæði vegna innheimtu félagsgjalds og til að endurgreiða þér stofnsjóðsinneign samkvæmt 5. gr. samþykktanna.
- Félagaspjall. Skilaboð sem þú sendir í félagaspjallinu (þar á meðal skilaboð til Þjarks) eru geymd í 14 daga og eytt sjálfkrafa eftir það, svo spjallið safnist ekki upp sem varanlegt gagnasafn.
Tilgangur og heimild
Upplýsingarnar eru notaðar til að reka félagaskrá, innheimta félagsgjald hjá fullaðildarfélögum, endurgreiða stofnsjóðsinneign samkvæmt 5. gr. samþykktanna og gera félagaspjall og Þjark aðgengileg. Sú vinnsla byggir á samningnum sem felst í félagaaðild sjálfri.
Hýsing og varðveisla
Vefurinn er rekinn á Cloudflare Workers með Cloudflare D1 gagnagrunni, á persónulegum Cloudflare-reikningi framkvæmdastjóra félagsins. Cloudflare er vinnsluaðili gagnanna og um vinnsluna gildir gagnavinnsluviðauki Cloudflare, sem er hluti af þjónustuskilmálum fyrirtækisins. Til stendur að flytja reksturinn á Cloudflare-reikning í nafni félagsins.
- Gagnagrunnurinn (Cloudflare D1) geymir félagaskrána, þar á meðal spjallsöguna. Hún er vistuð á Vestur-Evrópu (WEUR) svæði Cloudflare.
- Kenni.is staðfestir kennitölu, nafn og eftir atvikum símanúmer við innskráningu; Samtak svf. sér aldrei innskráningarupplýsingarnar sjálfar, aðeins niðurstöðuna.
- Anthropic (Claude) vinnur úr skilaboðum sem beint er til Þjarks í félagaspjallinu til að semja svar. Sjálf skilaboðin sem þú skrifar til Þjarks eru það eina sem fer þangað, ekki önnur gögn af Mínum síðum.
- jsDelivr (cdn.jsdelivr.net) sækir broskallatáknin fyrir broskallaveljarann í félagaspjallinu; að opna hann sendir fyrirspurn til þeirrar þjónustu.
- Google þjónustar Drive-skjalaveljarann (aðeins stjórnendur) og birtir skjalatákn fyrir hvern þann sem skoðar skjalalistann á Mínum síðum, en fær enga aðra síðuvirkni af Mínum síðum.
Cloudflare, Anthropic og Google eru bandarísk fyrirtæki og falla því undir CLOUD Act í Bandaríkjunum, sem getur í undantekningartilvikum heimilað bandarískum yfirvöldum aðgang að gögnum.
Félagaskrárgögn fyrrverandi félaga eru varðveitt þar til stofnsjóðsuppgjörið er lokið og sjö ár eru liðin frá lokum þess reikningsárs sem uppgjörið var fært á, samkvæmt 20. gr. laga nr. 145/1994, og þá eru persónugreinanleg gögn eytt en nafnlaus röð varðveitt fyrir söguleg félagatöl. Spjallskilaboð eru undantekning frá þessu: þau eru eytt sjálfkrafa 14 dögum eftir sendingu, óháð því hvort félagsaðild er enn virk.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, leiðréttingu þeirra og eyðingu. Óskir um aðgang að, leiðréttingu á eða eyðingu félagaskrárgagna sendast á samtak@samtak.is. Úrsögn úr félaginu fer fram í sjálfsafgreiðslu á Prófíl-síðunni undir mínum síðum, sbr. 4. gr. samþykktanna, og er það eina úrsagnarleiðin. Ef þú telur á þér brotið getur þú kvartað til Persónuverndar.