Þjark
Þjark er hluti af verkfærunum sem félagið notar á meðan það er í stofnunarferli og getur breyst eða lagst af eftir því sem félagið mótast.
Hvað er Þjark?
Þjark er sjálfvirkur aðstoðarþjarkur sem svarar spurningum um félagið út frá útgefnum staðreyndum, meðal annars drögum að samþykktum og ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar. Ef spurning á sér ekkert svar í þeim gögnum enn þá, til dæmis vegna þess að atriðið er raunverulega óákveðið, á Þjark að segja það hreint út frekar en að giska.
Hvar er hann?
Google Chat rýmið sem Þjark bjó í áður, SamTakaMátt, hefur verið lagt af. Félagaspjall félagsmanna er núna innbyggt á Mínum síðum og Þjark er kominn þangað líka: hann svarar í almennu rásinni sem allir virkir félagar eru sjálfkrafa í, þegar einhver skrifar „@þjark“ fremst í skilaboðum. Svarið er samið af tungumálalíkani (Claude frá Anthropic) og birtist beint í spjallinu.
Takmarkanir
Þjark er hvorki lögfræðileg né fjárhagsleg ráðgjöf, og félagið er lítið og að mestu rekið í sjálfboðavinnu, svo hér er hvorki þjónustuver né ábyrgst svartími. Ef svar hans er óljóst, eða spurningin er persónuleg, er samtakamatt@gmail.com rétta leiðin.
Skilmálar
Skilmálar fyrir notkun Þjarks eru hluti af skilmálum vefsins.