Persónuverndarstefna
Rósa Parks
Síðast uppfært: 2. september 2026
Ábyrgðaraðili
Þessi stefna á við um Rósa Parks (auðkenni: is.rosaparks), bílastæðaapp fyrir Reykjavík sem Samtak svf. (kt. 670826-0660) gefur út. Samtakið er ábyrgðaraðili gagnameðferðar í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (nr. 90/2018) og almennrar persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins (GDPR).
Samtak svf. sér um þróun og rekstur forritsins: bakendann á api.samtak.is, gagnagrunninn og villutilkynningaþjónustuna. Eina tenging Sósíalistaflokks Íslands við forritið er dreifing: appinu er enn dreift í gegnum útgáfureikninga flokksins í Google Play og hjá Apple. Sá útgáfureikningur gerir flokkinn þó ekki að ábyrgðaraðila þeirrar gagnameðferðar sem Samtak svf. framkvæmir, og flokkurinn vinnur ekki persónugögn forritsins.
Rósa Parks er dreift opinberlega í Google Play Store í gegnum svokallaða Open testing rás. Forritið er frjáls hugbúnaður og hluti af samfélagslegri ábendingu okkar um að borgin geti hannað og rekið slíkt forrit sjálf í stað þess að úthýsa því til einkaaðila sem rukka þjónustugjald ofan á opinber bílastæðagjöld.
Hvaða upplýsingum safnar forritið?
Rósa Parks safnar eins fáum upplýsingum og hægt er. Engin notendaskrá eða innskráning er í forritinu. Engin auglýsing, engin mælingakerfi (hvorki Firebase Analytics, Google Analytics, Sentry né önnur sambærileg) og engir samfélagsmiðla-SDK. Eina þjónusta þriðja aðila í forritinu er villutilkynningaþjónustan Firebase Crashlytics, sjá hér að neðan.
Á tækinu sjálfu (fer aldrei úr símanum):
- Staðsetning, notuð eingöngu af forritinu sjálfu til að finna næsta gjaldsvæði. Engin staðsetningarsaga er geymd og engin staðsetningargögn eru send á netþjóna okkar.
Send á netþjóna okkar þegar þú hefur stöðumælalotu:
- Bílnúmer sem þú slærð inn, ásamt auðkenni gjaldsvæðis og tímastimpli þegar lotan hefst. Þetta er það lágmark sem þarf til að bakendinn geti haldið utan um virkjaða lotu og endað hana þegar þú gefur merki.
Villutilkynningar (Firebase Crashlytics): ef forritið hrynur er hrunskýrsla send til Google í gegnum Firebase Crashlytics þjónustuna. Skýrslan inniheldur tæknilegar upplýsingar um hrunið (svokallað stack trace), tegund tækis, útgáfu stýrikerfis og uppsetningarauðkenni Crashlytics, en hvorki bílnúmer né staðsetningu. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að finna og laga villur í forritinu. Þetta á við um bæði Android- og iOS-útgáfur forritsins. Engin önnur mælinga- eða greiningarkerfi eru í forritinu.
Heimildir í Android-stýrikerfinu
Rósa Parks biður um eftirfarandi aðgangsheimildir. Hver heimild er með sérstaka og takmarkaða ástæðu:
ACCESS_FINE_LOCATIONogACCESS_COARSE_LOCATION, staðsetning- Til að finna næsta gjaldsvæði Bílastæðasjóðs á korti. Staðsetningin er einungis notuð inni í forritinu sjálfu og er aldrei send á netþjóna okkar.
INTERNET- Til að sækja gjaldsvæðagögn og verðlista úr opinberri ArcGIS þjónustu Reykjavíkurborgar (Borgarvefsja) og til að hefja og ljúka stöðumælalotum við bakenda forritsins.
Forritið biður ekki um aðgang að símtalasögu, tengiliðum, myndum, hljóðnema eða öðrum viðkvæmum heimildum.
Hvar eru gögnin geymd?
Bakendi Rósa Parks er rekinn á Cloudflare Workers með Cloudflare D1 gagnagrunni, á Cloudflare-reikningi sem rekinn er fyrir Samtak svf. Cloudflare er vinnsluaðili gagnanna og um vinnsluna gildir gagnavinnsluviðauki Cloudflare, sem er hluti af þjónustuskilmálum fyrirtækisins.
- Cloudflare Worker
rosa-parks-api(api.samtak.is), keyrir fyrir íslenska umferð á Keflavík POP (KEF), staðfestur meðcolo=KEF, loc=ISí Cloudflare trace. - Cloudflare D1
rosaparks, geymir virkar stöðumælalotur. Gagnagrunnurinn var stofnaður með bindandi ESB-lögsögu (jurisdiction: eu), sem þýðir að Cloudflare geymir og vinnur gögnin eingöngu innan Evrópska efnahagssvæðisins. Lögsögu er einungis hægt að setja við stofnun gagnagrunns og ekki hægt að bæta við eftir á.
Cloudflare er bandarískt fyrirtæki og fellur því undir CLOUD Act í Bandaríkjunum. Við teljum það ásættanlega áhættu fyrir bílastæðagögn vegna þess hve lítið viðkvæm þau eru (bílnúmer, svæði, tímastimpill). Ef einhver telur þessa áhættu of mikla er hægt að nota Rósa Parks án þess að hefja lotu. Gjaldsvæðin og verðlistinn eru opin og engin tilkynning er send.
Gagnavinnsluaðilar
- Cloudflare (Workers, D1), hýsing bakendans og gagnagrunns (sjá að ofan).
- Google (Firebase Crashlytics), móttekur hrunskýrslur (stack trace, tegund tækis, útgáfa stýrikerfis, uppsetningarauðkenni) þegar forritið hrynur, eingöngu til villuleitar.
- Visma iAsset ScanGo (rekstraraðili bakenda Bílastæðasjóðs), þegar tenging við opinbera bakendann verður virkjuð í prófunum mun bílnúmer og svæðisauðkenni vera sent ScanGo gegnum þeirra API. Sú vinnsla heyrir þá undir skilmála Bílastæðasjóðs og ScanGo; Rósa Parks þjónar einungis sem tengill.
Lögmæti vinnslu
Vinnsla bílnúmers og svæðisauðkennis á meðan virk lota stendur byggist á samþykki notanda (a-liður 1. mgr. 6. gr. persónuverndarreglugerðar), enda er það notandinn sjálfur sem ákveður að hefja lotuna.
Geymsla og eyðing
Skrár um virkar stöðumælalotur (bílnúmer, svæði og tímastimpill) eru þurrkaðar úr gagnagrunninum innan sólarhrings frá því að lotan endaði. Sjálfvirk hreinsun keyrir á klukkustundar fresti í bakendanum. Lotum sem aldrei er lokað, til dæmis ef forritið er fjarlægt af símanum í miðri lotu, er eytt í síðasta lagi sjö dögum eftir að þær hófust.
Þú getur óskað eftir eyðingu gagna hvenær sem er: sjá hvernig þú biður um eyðingu gagna.
Engar varanlegar einkenndar (e. personally identifiable) skrár um liðnar lotur eru geymdar í bakendanum.
Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarreglugerðinni átt þú rétt á að:
- fá staðfestingu á því hvort við vinnum með upplýsingar um þig,
- fá afrit af upplýsingunum,
- láta leiðrétta rangar upplýsingar,
- láta eyða upplýsingunum,
- flytja upplýsingarnar til annarrar þjónustu,
- mótmæla vinnslu,
- kvarta til Persónuverndar ef þú telur að við meðhöndlum gögnin þín ekki í samræmi við lög.
Opinn hugbúnaður og rekjanleiki
Allur kóði Rósa Parks er opinn og aðgengilegur á github.com/samtak-svf/open-rosa-parks. Þú getur þannig sjálf eða sjálfur staðfest nákvæmlega hvaða gögn forritið og netþjónninn vinna með.
Tengiliður
Spurningar, kvartanir eða beiðnir um aðgang að eða eyðingu gagna sendast á samtakamatt@gmail.com.
Samtak svf. (kt. 670826-0660) · Gullengi 37 · 112 Reykjavík.
English
This policy is published in Icelandic. If you need it in English, write to samtakamatt@gmail.com and we will send a translation.