Rósa Parks
Eyðing gagna
Það er enginn notandaaðgangur
Rósa Parks (is.rosaparks) hefur enga innskráningu og heldur enga notendaskrá. Það er því enginn aðgangur til að loka. Þau gögn sem yfirleitt geta verið til um þig eru talin upp hér að neðan ásamt því hvernig hver tegund eyðist.
Það sem eyðist sjálfkrafa
- Virk stöðumælalota (bílnúmer, auðkenni gjaldsvæðis og tímastimpill) er þurrkuð úr gagnagrunninum innan sólarhrings frá því að lotan endaði. Engar varanlegar skrár um liðnar lotur eru geymdar.
- Netfang beta-prófanda er þurrkað úr gagnagrunni okkar þegar þér hefur verið boðið í prófunina á Google Play. Eftir það er netfangið einungis í prófendalista Google Play, þar sem Google er sjálfstæður ábyrgðaraðili.
- Hrunskýrslur (Firebase Crashlytics) verða til ef forritið hrynur og innihalda tæknilegar upplýsingar um hrunið, tegund tækis og útgáfu stýrikerfis, en hvorki bílnúmer né staðsetningu. Google geymir þær tímabundið og eyðir þeim sjálfkrafa samkvæmt varðveislureglum Crashlytics.
Staðsetning er aldrei send úr símanum og því ekkert til að eyða hjá okkur.
Hvernig þú biður um eyðingu
Sendu skilaboð á gudrodur@sosialistaflokkurinn.is og segðu hvað þú vilt láta eyða. Það er nóg að nefna netfangið sem þú skráðir þig með, eða bílnúmerið ef þú vilt láta eyða virkri lotu.
Við svörum innan 30 daga og eyðum gögnunum um leið og við getum staðreynt hvað á að fara. Þú þarft ekki að gefa upp ástæðu og engin gjöld eru tekin.
Þú getur líka farið fram á að fá afrit af gögnunum, láta leiðrétta þau eða mótmæla vinnslu. Sömu skilaboð, sama netfang.
Ábyrgðaraðili
Sósíalistaflokkur Íslands er ábyrgðaraðili gagnameðferðar í Rósa Parks. Samtak svf. sér um þróun og rekstur forritsins og birtir þessa síðu. Full persónuverndarstefna, með lista yfir gagnavinnsluaðila og lagagrundvöll vinnslunnar, er á persónuverndarsíðu forritsins.
Ef þú telur á þér brotið getur þú kvartað til Persónuverndar.